153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

Störf þingsins.

[10:48]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hv. þm. Bergþór Ólason nefndi grjótið sem liggur hér fyrir utan hús, Svörtu keiluna svokölluðu, og ég tek undir með hv. þingmanni að það er óskiljanlegt að þingið hafi ekki haft sig í að fjarlægja þetta. Einn fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar taldi að þetta nýttist best í Landeyjahöfn. En hvað sem menn gera við það þá er tækifærið núna, eins og hv. þm. Bergþór Ólason bendir á.

Hér áður fyrr var það regla að það ætti aðeins að vera eitt minnismerki við Austurvöll, styttan af Jóni Sigurðssyni. Svo kom grjótið og svo er reyndar bætt við sovéskri styttu af fyrstu íhaldskonunni hérna við innganginn, en hún er alla vega flott, glæsileg stytta og ekki ástæða til að að setja út á hana, hvað sem líður reglubrotinu, frá því sem áður var um Austurvöll. En við Svörtu keiluna bætist nú svarti kassinn sem Alþingi er að byggja. Ég vil nota tækifærið til að hvetja hæstv. forseta til að huga að því hvernig það hús verður hannað að innan. Það er orðið of seint að hanna annars konar hús að ytra byrði en mér skilst að enn sé verið að hanna húsið að innan. Þá skiptir máli fyrir þingmenn og sérstaklega starfsmenn Alþingis að vinnuumhverfið sé aðlaðandi, notalegt, búi til góðan anda, því að það hjálpar fólki í störfum sínum og getur jafnvel hjálpað til við þingstörfin. Við getum rétt ímyndað okkur hvers konar leiðindi væru hér stundum ef við værum ekki að starfa í þessu fallega og notalega umhverfi sem við fáum að njóta hér í eldri byggingum þingsins. Þessari hvatningu er hér með formlega komið til forseta; annars vegar um að fjarlæga grjótið og hins vegar að huga að umhverfinu sem starfsmenn Alþingis og þingmenn munu starfa við til næstu áratuga að minnsta kosti.