Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Mig langar að víkja nokkrum orðum að mati loftslagsráðs á stöðunni í loftslagsmálum eftir COP- 27 ráðstefnuna í Egyptalandi. Eins og hv. þingmenn hljóta að gera sér grein fyrir er staðan erfið, dökk og ófyrirsjáanleg. Við stefnum þráðbeint, jarðarbúar, í hækkun sem nemur 2,8°C hlýnun á þessari öld. Öll vilyrði og stefna um að halda hlýnuninni innan 1,5°C markanna sem samþykkt voru í París eru í stórkostlegri hættu. Ég minni aftur á að lesa má um hvaða afleiðingar slík hlýnun hefði, sannkölluð hamfarahlýnun, á vistkerfi jarðar, lífsskilyrði mannanna o.s.frv. Loftslagsráð, sem orðar sín álit með frekar varlegum hætti, bendi stjórnvöldum á að klukkan tifi. Það bendir líka stjórnvöldum á að markmið Íslands, hvort sem það eru markmiðin innan lands eða innan ETS-kerfisins, séu óútfærð. Við höfum ekki enn þá komið okkur upp útfærðum leiðum til að mæta þeim markmiðum sem Ísland þarf að ná í samdrætti gróðurhúsalofttegunda. Ég velti fyrir mér hvað sé í gangi í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Það er ekki búið að uppfæra aðgerðaáætlun, það er ekkert að gerast í nauðsynlegum laga- og reglugerðarbreytingum. Það er eins og það sé ekki lífsmark í ráðuneytinu og á meðan ætlar landið sem ætti auðveldast með það af öllum ríkjum í heimi að ná samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda að sitja hjá.