Störf þingsins.
Herra forseti. Ég ætla að fara hér nokkrum orðum um þessa atburðarás á síðustu dögum þingsins þegar kemur að þessari umdeildu styrkveitingu upp á 100 milljónir til eins fjölmiðils, eins og það var hugsað í upphafi og hefur einhvern veginn varpað skugga á alla fjárlagagerðina. Atburðarásin er svona: Framkvæmdastjóri hjá N4 á Akureyri játar í viðtali að það hafi verið þingflokksformaður Framsóknarflokksins sem óskaði sérstaklega eftir því að sjónvarpsstöðin bæði fjárlaganefnd um styrk og myndi rökstyðja það fyrir nefndinni. Rökstuðningurinn er sendur í bréfi og þetta bréf er aldrei rætt í fjárlaganefnd, bara á fundi meiri hluta fjárlaganefndar. Meiri hlutinn hendir þessu inn og orðar tillöguna þannig að bara eitt fyrirtæki uppfyllir skilyrðin. Þetta er til reksturs fjölmiðla á landsbyggðinni sem framleiða sjónvarpsefni. Það er bara eitt fyrirtæki á landsbyggðinni sem framleiðir sjónvarpsefni. Það er mögulega hægt að skáskjóta einum litlum fjölmiðli þarna inn. Þetta er algerlega nákvæmlega eins og ef ég myndi leggja það til að veittur yrði almennur fjárhagsstyrkur til allra landsmanna en hafa skilyrðin þannig að þeir einir geta sótt um sem eru 53 ára gamlir karlmenn sem hafa starfað í a.m.k. tvo áratugi hjá fjölmiðlum, eru búsettir í Blönduhlíð og eiga íslenskan fjárhund. Fjárveitingin er sögð almenn en skilyrðin eru klæðskerasaumuð að einum aðila. Það verður auðvitað allt vitlaust, ekki síst meðal fjölmiðla landsins sem sjá auðvitað strax að þarna er verið að fara hjáleið fram hjá almennum potti.
Meiri hlutinn reynir að klóra í bakkann til að gera ráðstafanir og breytir nefndaráliti sem þegar var búið að dreifa og breytingin er sú að ráðherra er falið að gera ráðstafanir til að verja peningum með tilteknum hætti innan þessa almenna potts. Einum eiganda, viðkomandi sjónvarpsstöðvar, viðkomandi fjölmiðils, í þessu tilfelli Byggðastofnun, er svo falið að gera úttekt á stöðu fjölmiðla á landsbyggðinni sem verður svo væntanlega andlag frekari styrkveitinga til viðkomandi miðils. Með fullri virðingu fyrir öllum þeim sem að þessu máli koma, fyrir sjónvarpsstöðinni, fyrir Byggðastofnun og eigendum sjónvarpsstöðvarinnar og meiri hluta fjárlaganefndar: Þetta er gamli tíminn. Svona vinnum við ekki lengur. Við höfum leikreglurnar og eigum að hafa þær almennar, ekki sértækar. Við erum að eyðileggja þann pott þar sem almennir einkareknir miðlar geta sótt um styrki með því að fara þessar hjáleiðir í kringum hlutina.