153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

tihögun þingfundar.

[11:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að gert er ráð fyrir því að taka nú atkvæðagreiðslur um 2.–7. dagskrármálið. Að loknum þeim atkvæðagreiðslum verða tekin fyrir næstu dagskrármál og gert ráð fyrir því að eitthvað síðar í dag verði boðað til atkvæðagreiðslna um 8.–16. dagskrármálið. Forseti vill síðan geta þess að gert er ráð fyrir fleiri þingfundum og fleiri atkvæðagreiðslum síðar í dag.