fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Fjárlög þessa árs hafa meiri þýðingu en oft áður í ljósi þess hverjar aðstæður eru í glímunni við verðbólgu þar sem við sjáum vaxtahækkanir og í tengslum við kjarasamninga. Í því ljósi eru vinnubrögð meiri hlutans hér umhugsunarverð því að við erum að horfa á niðurstöðu sem mætti gefa því einfalda einkunnarorð óábyrg. Hér hefur meiri hlutinn staðið að því að fella tillögur minni hlutans um hagræðingu, að fella tillögur um tekjuöflun og ríkisstjórnin er einfaldlega á hliðarlínunni, axlar ekki sína ábyrgð, leikur ekki sitt hlutverk í baráttunni við verðbólgu. Afleiðingin er sú að almenningur tekur reikninginn. Það er ótrúlegt að við þær aðstæður sem við erum að horfa upp á núna neiti ríkisstjórnin einfaldlega að sinna hlutverki sínu og taka virkan þátt í að vinna gegn verðbólgunni.