153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

fjárlög 2023.

1. mál
[11:50]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta er að óbreyttu síðasti starfsdagur okkar í þinginu á þessu ári. Í því samhengi vil ég halda því fram að allir hér inni séu að gera sitt besta, hver með sínum hætti. Það er yfir mörgu að gleðjast en það er einnig í ýmsum málum eitthvað sem betur hefði mátt fara. Ég vil óska þeim til hamingju sem hér geta vel við unað eftir afrakstur þessa haustþings og biðja hina forláts sem hefði mátt gera betur fyrir.

Ég vil svo gera það að mínum síðustu orðum í þessu samhengi að við mættum bæta verklagið og skilaboðin út á við til samfélagsins og taka bestu þing nágrannalandanna þar til fyrirmyndar. Ég er ekki þar með að segja að hér sé allt í volli en ég held að það sé svigrúm til betrunar á starfsháttum okkar og með hvaða hætti við skiptum með okkur lögunum á þeim geisladiski sem við erum að fara að senda frá okkur núna þannig að allir fái vel við unað sem gera sitt besta hér á þingi. (Forseti hringir.)

Svo segi ég bara: Takk fyrir samstarfið og gleðileg jól.