fjárlög 2023.
Virðulegi forseti. Það er hægt að horfa á fjárlögin út frá mörgum ólíkum sjónarhornum. Eitt er að gera, eins og sumir gera hér, að spyrja sig hversu miklum breytingum tók frumvarpið í meðförum þingsins og þeim mun meiri breytingum sem frumvarpið tekur þeim mun verra hlýtur fjárlagafrumvarpið að hafa verið. Þetta hef ég heyrt. En ég er með miklu einfaldari mælikvarða á þetta. Hann er sá hvaða árangri við erum að ná fyrir fólkið í landinu. Við erum að veita skjól fyrir þá sem eru í veikri og viðkvæmri stöðu. Við erum að grípa inn í þar sem helst er kallað eftir, t.d. í húsnæðismálum með aukabarnabótum og öðru slíku. Við höfum, með því að vera skýr, með mörgum fundum í þjóðhagsráði og góðu samtali, vonandi stuðlað að því að samningar eru að takast á vinnumarkaði fyrr en áður hefur verið, áður en samningarnir renna út. Þannig erum við samanlagt að halda áfram á þeirri vegferð sem við höfum verið sem ríkisstjórn síðan 2017, jafnt og þétt að skapa skjól fyrir þá sem mest þurfa á því að halda og byggja upp lífskjör með kraftmiklu efnahagslífi og þéttriðnu félagslegu (Forseti hringir.) öryggisneti á Íslandi. Þessi fjárlög eru þess vegna í þessum sama anda og munu reynast farsæl.