153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[13:24]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Mig langar að koma hér á framfæri sjónarmiðum Samtaka leigjenda eins og þau birtast í skrifum Guðmundar Hrafns Arngrímssonar, formanns samtakanna. Samtök leigjenda vilja meina að frumvarpið styrki stöðu leigusala gagnvart leigjendum og ganga svo langt að fullyrða að verið sé að fleygja leigjendum í bjarnargildru. Ef við byrjum á að rekja sögu þessa frumvarps þá kom það fyrst fram sem drög í byrjun árs 2020 og var þá hluti af viðbrögðum stjórnvalda við niðurstöðum átakshóps þjóðhagsráðs um neyðarástand á húsnæðismarkaði sem birtar voru í janúar 2019.

Markmið frumvarpsins var að bæta réttarstöðu leigjenda með tilliti til breytinga á leigufjárhæð og auka húsnæðisöryggi þeirra. Í þeim frumvarpsdrögum voru settar fram fimm tillögur að ákvæðum sem takmarka áttu heimildir leigusala til að hækka húsaleigu umfram verðlag og kostnað, eins konar leigubremsu. Leigubremsa var ein af kröfum verkalýðsfélaganna sem tóku þátt í samráðsvinnu átakshópsins og féllust stjórnvöld á þá kröfu og lofuðu því að lögfesta leigubremsuna. Það væri gaman að vita hvað varð af því loforði þegar við horfum á stöðuna í dag. Einnig var gert ráð fyrir því að allir húsaleigusamningar yrðu að jafnaði ótímabundnir til að tryggja húsnæðisöryggi leigjenda.

Nú hefur innviðaráðherra hins vegar fallið frá þeim loforðum sem og mörgum fleirum og eftir stendur einungis skráningarskylda leigusamninga. Mikil andstaða kom frá Samtökum atvinnulífsins við tillögum um leigubremsu og bentu þau sér til stuðnings á greinargerð frá Samtökum fasteignafélaga í Bandaríkjunum um neikvæð áhrif hennar á leigumarkaðinn. Einnig birtist andstaða Heimavalla ehf. við skerðingu á samningsfrelsi og íþyngjandi skráningarferli og voru þær athugasemdir einnig í takt við skrif Samtaka atvinnulífsins. Það virðist því vera sem svo að ráðherra hafi að fullu tekið tillit til athugasemda leigufélagsins og Samtaka atvinnulífsins við breytingar á frumvarpinu, frumvarpi sem eitt sinn hafði það markmið að bæta réttarstöðu leigjenda en núna, þegar við fjöllum um það í þriðja skiptið á þremur árum, hafa orðið á því miklar breytingar.

Núna snýst það eingöngu um skráningarskyldu leigusamninga. Skráningarskylda sú sem mælt er fyrir hefur það að markmiði að bæta rauntímaupplýsingar um leigumarkaðinn sem síðar gætu leitt til markvissari umbóta á leigumarkaðnum. Gefið er í skyn að þær upplýsingar sem stofnanir samfélagsins hafa um stöðu leigjenda á leigumarkaði nægi ekki til að hægt sé að fara í aðgerðir til að bæta réttarstöðu þeirra. Samt hefur fjöldi stofnana og félaga safnað tölulegum upplýsingum um fjölda leigjenda og verðmyndun á leigumarkaði í áratugi. Þær upplýsingar og rauntölur sem liggja fyrir, bæði frá skráningum og könnunum, sýna hins vegar fram á lélega réttarstöðu leigjenda, gríðarlegt húsnæðisóöryggi þeirra og grimmilega sjálftöku leigusala með sífelldum hækkunum á húsaleigu, eins og þjóðin hefur orðið vitni að á síðustu dögum og fleiri frásagnir munu líta dagsins ljós á næstu dögum um þennan hóp sem svo sannarlega þarf að verja fyrir ágangi og græðgi stóru leigufélaganna.

Þetta er kannski ekki myndin sem við sem velferðarsamfélag viljum horfast í augu við en hún er engu að síður staðreynd. Ráðherra hefur því miður lagst flatur fyrir umkvörtunum leigufélaganna, fasteignaeigenda og Samtökum atvinnulífsins og gengið að kröfum þeirra. Það gerir hann þrátt fyrir loforðin sem hann gaf og þrátt fyrir að upphaflegt markmið frumvarpsins sé að bæta réttarstöðu leigjenda.

Í því frumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi er gert ráð fyrir að sanngjörn markaðsleiga ráðist eingöngu af þáttum sem skipta kostnað og verðmæti leigusala máli. Er það gert í 6. gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að þremur málsgreinum verði bætt við 37. gr. núverandi húsaleigulaga en í henni segir að húsaleiga skuli vera sanngjörn og eðlileg í garð beggja aðila. Hvergi í frumvarpinu eru hins vegar nefnd atriði sem lúta að hagsmunum leigjenda og varða íþyngjandi leiguverð.

Með því að skilgreina markaðsleigu sem dregin er fram með skráningum allra leigusamninga, sem lúta engum öðrum takmörkunum en græðgi leigusala, sem við vitum öll í dag að er nær því takmarkalaus, a.m.k. hjá stóru leigufélögunum, ætlar innviðaráðherra að lögfesta viðmið fyrir hugtakið sanngirni í núverandi húsaleigulögum. Hefur ráðherra ekki aðeins fallið frá fyrri tillögum um að styrkja réttarstöðu leigjenda með því að veita kærunefnd húsnæðismála ríkari heimildir til að úrskurða um fjárhæðir húsaleigu heldur líka lagt til að sanngjörn markaðsleiga verði eingöngu á forsendum leigusala og að þeir ráði henni einir.

Í þau fáu skipti sem leigjendur hafa reynt að skjóta ágreiningi um leigufjárhæð til kærunefndarinnar hefur þeim alltaf verið hafnað vegna ákvæða um samningsfrelsi í húsaleigulögum. Flestir þeir leigusamningar sem eru þinglýstir og koma fram í opinberri tölfræði, um fjölda heimila á leigumarkaði og leiguverð, eru frá þeim hópi leigjenda sem eru á lægri launum og með lægri húsaleigu. Hlutfall þeirra samninga sem eru innan félagslega rekins leigumarkaðar af núverandi tölfræði er mun hærra en það er sem hlutfall af öllum leigusamningum. Eini hvati leigjenda til að þinglýsa samningunum er vegna húsnæðisbóta. Ef tekjur heimila geta hins vegar staðið undir stórum hluta þeirrar húsaleigu sem viðgengst þá falla sjálfkrafa niður réttindi til húsnæðisbóta og því enginn hvati til að þinglýsa. 17.000 heimili hlutu húsnæðisbætur í fyrra en talið er að á bilinu 35–40.000 heimili séu á leigumarkaði. Það er því minna en helmingur allra heimila á leigumarkaði sem hlýtur húsnæðisbætur. Með því að skylda alla til að skrá leigusamninga mun öll hin háa húsaleiga koma inn í mælda húsaleigu og verða notuð sem viðmið fyrir allan leigumarkaðinn. Þannig mun húsaleiga hækka meira en áður og mun öll sú hækkun eingöngu verða á forsendum leigusala eins og mælt er fyrir í frumvarpinu.

Verði þetta frumvarp samþykkt mun það eingöngu styrkja gangverk núverandi fyrirkomulags á leigumarkaði. Það fyrirkomulag er síhækkandi húsaleiga, langt umfram verðlag, viðvarandi skortur á húsnæði til kominn vegna yfirburðastöðu leigusala, fullkomið réttarleysi og húsnæðisóöryggi leigjenda. Þetta frumvarp gengur því þvert á upphaflegt markmið ráðherra um að bæta réttarstöðu leigjenda og draga úr íþyngjandi húsnæðiskostnaði þeirra. Íþyngjandi húsnæðiskostnaður leigjenda er þrefalt algengari en hjá fasteignaeigendum og þrátt fyrir hækkanir á fasteignamarkaði hefur það hlutfall tvöfaldast hjá leigjendum undanfarinn áratug en farið lækkandi hjá eignafólki. Leigjendasamtökin setja sig ekki upp á móti betri gagnaöflun og frekari verkefnum hjá húsnæðisstofnun ráðherrans en að gera því skóna að með því sé högum og kjörum leigjenda betur borgið er bæði bíræfið og ósvífið, svo að ekki sé dýpra í árinni tekið. Það hefur enginn leigjandi beðið um þetta. Eftir fjögurra ára vinnu sérfræðinga og kjörinna fulltrúa ásamt samvinnu hundruð einstaklinga, tvo átakshópa og samninga við verkalýðshreyfinguna ásamt stanslausum neyðarópum leigjenda leggur ráðherrann til að innra starf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði bætt sem leiðir af sér að staða leigjenda verður verri en áður.

Með þessu frumvarpi hefur ráðherra ekki bara svikið öll sín fyrri loforð heldur einnig snúið markmiðum þess á haus og er því ætlað að styrkja stöðu leigusala, lögfesta sjálftöku þeirra og gefa áður óþekkt viðmið við hugtakinu sanngirni. Þetta frumvarp er sniðið að þörfum leigusala en tekur ekki mið af hagsmunum leigjenda og með því er leigjendum hent beint í bjarnargildru leigusala sem er dapurlegt, svo að ekki sé kveðið fastar að orði.

Samtök leigjenda eru fulltrúar þeirra sem leigja, eins og nafnið bendir til. Þetta sem ég hef farið með eru sjónarmið þeirra. Það er ekki gott afspurnar að frumvarp sem þetta taki ekki mið af sjónarmiðum þeirra sem studd eru kröfum verkalýðshreyfingarinnar heldur sé það þvert á móti lagað að kröfum leigusala og Samtaka atvinnulífsins. Hvað veldur? En hvert svo sem svarið við því er er ljóst að þetta er ekki nógu gott og þetta þarf að bæta.