153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[15:20]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Það eru ekki falleg skilaboð frá Alþingi að það eigi að samþykkja þetta frumvarp hér rétt fyrir jól, að það skuli eiga að stíga það skref að leggja af starfsgrundvöll heillar stéttar á einu bretti, starfsstéttar sem miklar kröfur hafa verið gerðar til, sívaxandi kröfur og aukinn kostnaður á undanförnum árum. Aðrar stéttir hafa ekki mátt þola þetta en ég vona að fólk í öðrum stéttum samfélagsins fylgist með þessu því að ef þetta verður fordæmið er verið að opna á möguleika stjórnvalda á að kippa grundvellinum undan starfsemi fjölmargs annars fólks í samfélaginu. Menn nefna það að það sé vöntun á leigubifreiðum á háannatímum en á hvaða öðrum sviðum er brugðist við slíku með því að leggja starfsstéttina af? Leigubílstjórar hafa verið reiðubúnir til þess að vinna með stjórnvöldum að því að bæta ástandið eins og mögulegt er. En viljinn til að hlusta er enginn og birtist svo í sjónvarpinu í því að dyrunum er bókstaflega skellt á formann stéttarfélags leigubílstjóra. Ég segi nei.