153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[15:21]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Með samþykkt þessa frumvarps í dag erum við að auka þjónustuna, gera hana fjölbreyttari, auka val um að fólk geti stundað þessa atvinnu í hlutastarfi. Ég spyr þingheim: Er það ekki dálítið sérstakt að ríkisvaldið sé að skikka menn til þess að vera í fullu starfi við þessa grein? Varðandi áhyggjur manna af Uber og af því að farveitur komi hingað inn þá er það einfaldlega þannig að ef þær standast sömu kröfur og önnur fyrirtæki á Íslandi þá geta þær starfað hér. Það er ekki á þeim forsendum sem þær hafa starfað erlendis, þær þurfa að sætta sig við íslenskar reglur.

Varðandi umræðuna um Noreg þá eru Norðmenn að skoða það að breyta í þá átt sem er í þessu frumvarpi. Þeir gengu sem sagt lengra í sínum breytingum og eru að spóla til baka. Í þessu frumvarpi var lagt til að fara málamiðlunarleið, hlustað á sjónarmið leigubílafyrirtækjanna og félaganna á sínum tíma og eftir fjögur ár, sem eðlilega var frestað að takast á við í Covid, erum við að ljúka þessu hérna. (Forseti hringir.) Það er auðvitað ekki verið að leggja niður stétt leigubílstjóra. Það er verið að auka frelsi, bæði þeirra sem þar starfa (Forseti hringir.) til að velja sér vinnutíma sem og annarra sem geta hugsanlega tekið þátt í því líka, í hlutastörfum.

(Forseti (BÁ): Þingmaðurinn segir?)

Þingmaðurinn segir já.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að aðeins er gefin ein mínúta til þess að gera grein fyrir atkvæði sínu.)