153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[15:23]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir góða vinnu í þessu máli en það hefur tekið töluverðum breytingum í meðhöndlun nefndarinnar, bæði í fyrri umfjöllun og aftur núna. Það sem við höfum haft að leiðarljósi í nefndinni var það að auka þjónustu og tryggja öryggi neytenda og um leið að bæta kjör þeirra sem starfa í greininni. Það voru þau markmið sem við höfðum að leiðarljósi við vinnslu á þessu frumvarpi og ég held að það hafi tekist vel til. Við heyrðum vissulega áhyggjur leigubifreiðastjóra og fleiri aðila. Við settum því skýrt í okkar skilaboðum til þingsins og ráðherra að það ætti að fylgjast með vissum atriðum eins og hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir kom hér inn á áðan. Ég tel mikilvægt að þótt við höfum sett dagsetningu inn í frumvarpið, hvenær ætti að endurskoða lögin, þá byrji endurskoðunin strax og þau taki gildi og að fylgst verði með öllum þessum atriðum samhliða því að þau taka gildi og svo kemur endurskoðun í framhaldi af því. Ég segi já.