153. löggjafarþing — 51. fundur, 16. des. 2022.
leigubifreiðaakstur.
167. mál
Virðulegi forseti. Ég styð þetta mál og greiði því atkvæði mitt. Hérna er um að ræða heilbrigt skref í frjálslyndisátt, heilbrigt skref í átt að aukinni þjónustu við almenning í landinu, frekar feimið frelsismál því að það hefði mátt stíga stærra skref. Ég ætla bara að segja hérna inni, vegna þess að það var verið að tala um það hvaða orð heyrðust ekki hérna inni, að ég sakna þess af hálfu þeirra sem tala gegn þessu máli að þeir taki sér orðið neytendur í munn. Ég segi já.