153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[15:27]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Hv. þingmenn Miðflokksins óska eftir fleiri stuðningsmönnum við málið hér á þingi en mér heyrist þeir nú vera mjög margir. Þeir tala fyrir leigubílaþjónustu hér á landi sem felur í sér stöðnun og skort á nýsköpun sem kemur helst niður á neytendum en líka bílstjórunum sjálfum. Mér þykja þeir stilla hlutunum upp þannig að þeir sem tala fyrir auknu frelsi þurfi að færa fram bestu rökin fyrir því af hverju það ætti að auka frelsi. Það er nú þannig að þeir sem ætla að tala hér fyrir því að viðhalda forneskjulegum kerfum með takmörkunum og hindrunum þurfa að færa fyrir því mun meira sannfærandi rök en að halda í einokunarkerfi sem þjónar ekki landsmönnum þessa lands, hvorki þeim sem ætla að neyta og nota þjónustuna né tækifærum bílstjóranna og starfsmannanna sjálfra. Ég segi því já við þessu frelsisskrefi af því að ég tel það til hagsbóta fyrir fólk í landinu, bílstjórana sjálfa, starfsgreinina og Ísland í heild sinni.