153. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2022.

leigubifreiðaakstur.

167. mál
[15:35]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Herra forseti. Hér verður hv. þingmönnum tíðrætt um frelsi. Ég verð að segja að eina frelsið sem ég fékk var það öryggi sem leigubílaþjónusta Hreyfils veitir og gefur mér. Hér er líka verið að tala um hugtakið neytendur. Ég veit það ekki. Þessir 600 blindu og sjónskertu einstaklingar frá Blindrafélaginu eru auðvitað engir neytendur og það á bara að jaðarsetja þá eins og venjulega. Ég ætla bara að benda á það að hér ríkir frelsi og hér eru líka fatlaðir og sjónskertir og einstaklingar sem eru með alls konar skerðingar og þurfa á þessari hjálp að halda. Þeir eru líka neytendur. Þeir eru líka fólk, virðulegi forseti. Ég segi nei.