153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[16:40]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við þetta mál. Hún er ekki umfangsmikil en gæti engu að síður bætt málið til mikilla muna. Til upprifjunar, úr fyrri umræðum um málið, þá snýst það um að gera breytingar á lögum sem voru sett að frumkvæði núverandi hæstv. forsætisráðherra, þá menntamálaráðherra, árið 2012 og tóku breytingum sem voru mjög til bóta hér á Alþingi og úr varð prýðisgott mál sem skipti miklu við að vernda það tiltölulega litla sem við Íslendingar eigum af menningararfi í formi bygginga og raunar annarra hluta líka, báta og mannvirkja.

Helsti gallinn við þetta mál á þeim áratug sem liðinn er frá því að lögin voru sett er sá að það hefur ekki alltaf verið farið nógu vel eftir þeim en það er önnur saga. Markmið laganna voru mjög jákvæð. Ég hrósaði þáverandi menningarmálaráðherra fyrir þetta á sínum tíma og hef gert það alloft í millitíðinni. En nú er lagt til að gerð verði breyting á lögunum sem dregur eða mun draga töluvert úr áhrifum laganna og í raun horfið frá þeirri hugsjón sem var lagt upp með á sínum tíma, að að 100 árum liðnum þá öðluðust byggingar friðun. Það þýddi ekki að ekkert mætti gera varðandi viðkomandi byggingar og eins og dæmin sanna hafa ótal oft verið gefin leyfi fyrir því að færa byggingar, jafnvel fjarlægja alveg, þrátt fyrir að þær hafi átt að njóta verndar samkvæmt þessum lögum en í öllu falli þá veitti þetta yfirsýn yfir þessi mannvirki og meginreglan átti að vera sú að vernda þau.

Nú er þessi breyting kynnt og rökstudd með hætti sem maður getur sýnt ákveðinn skilning, að eftir því sem tíminn líður þá verði fleiri og fleiri hús sem öðlist vernd enda fjölgaði Íslendingum töluvert fyrir 100 árum og byggingarmagn jókst. Hér er lýst áhyggjum af því að fyrr en varir verði fjöldi þeirra bygginga sem öðlist friðun á hverju ári orðinn það mikill að við það verði erfitt að ráða, og eins og ég segi, maður getur sýnt því skilning.

Ég geri hins vegar athugasemd við hvar mörkin eru dregin. Þar er miðað við að höggva á þetta, ef svo má segja, strax við næstu áramót, eða á næsta ári, þannig að byggingar byggðar eftir 1923 öðlist ekki þessa friðun eða vernd. Það skortir rökstuðning fyrir þessu ártali, hann virðist eingöngu vera sá að þá eru liðin 100 ár frá því að byggingar byggðar 1923 voru reistar. Með því að breyta ártalinu er hægt að mínu mati að breyta eðli þessa máls í grundvallaratriðum og bæta það til mikilla muna, bregðast þá við þessum ótta við að of margar byggingar verði friðaðar án þess að fórna húsum sem þessum lögum var í raun ætlað að vernda með tíð og tíma. Með því að færa viðmiðunarártalið frá árinu 1923 í 1930 náum við inn mjög merkilegu tímabili í sögu íslenskrar byggingarlistar. Árið 1930 varð grundvallarbreyting — það mætti segja plús eitt eða tvö ár, en miðpunkturinn var árið 1930 — í byggingarlist, framkvæmdum, ekki bara á Íslandi heldur um allan hinn vestræna heim og jafnvel víðar, þegar módernisminn, alþjóðahyggja í byggingarlist, ruddi sér til rúms. Þegar ég segi alþjóðahyggja þá er það tilraun til að þýða enska orðið „internationalism“, þ.e. það var ekki lengur stíll hvers svæðis eða hvers lands sem byggt var eftir heldur alþjóðlegur stíll sem tók ekki mið af sögulegum aðstæðum á hverjum stað. Byggingar í þessum alþjóðlega stíl eru margar mjög merkilegar og hafa margar hverjar verið friðaðar en þarna verður breyting frá því að við séum að byggja í stíl sem einkennir Ísland, sem er öðruvísi en annars staðar, sem til að mynda gefur miðbæ Reykjavíkur staðbundnu einkennin sín og gerir hann ólíkan öðrum bæjum eða borgum í öðrum vestrænum löndum því þetta hefur allt breyst með tímanum og nú er byggt í mjög sambærilegum stílum um allan heim. Í þessu eru mikil verðmæti, í því að við höfum þessa sérstöðu íslenskra bæja og borgarinnar hér þó að því miður hafi allt of mikið af þeirri sérstöðu horfið. Það er að mínu mati mikið tjón.

Tímabilið sem þarna er undir, og þessari breytingartillögu er ætlað að laga, árabilið 1923–1930, var gullöld þess byggingarstíls sem má hæglega færa rök fyrir að sé stærsta framlag Íslands til byggingarlistar í sögunni, það sem stundum er kallað steinsteypuklassík. Það gerðist nefnilega sá merkilegi hlutur á Íslandi að við vorum þrátt fyrir að vera fámenn þjóð á þessum tíma mjög fljót til að fara að nýta okkur kosti steinsteypunnar við að reisa byggingar. Þetta var gert á þessu tímabili með því að nýta steinsteypu til að búa til byggingar í barokkstíl, í nýklassískum stíl, í endurreisnarstíl og ekki hvað síst aðlaðandi, snotur alþýðuhús, byggð eftir mjög framsýnum hugmyndum Guðmundar Hannessonar læknis, sem markaði mikil tímamót í sögu íslenskra skipulagsmála.

Á þessum tiltölulega fáu árum urðu til margar þeirra bygginga sem eru einkennandi fyrir gamla byggð á Íslandi, nýklassíkin, hvort sem það voru litlu alþýðuhúsin með krosspóstagluggunum eða stærri byggingar — það nægir að líta hér út um gluggann og líta á Hótel Borg frá 1929. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að þetta stóra framlag Íslands til byggingarsögunnar á heimsvísu verði verndað eins og kostur er, verndað af sögulegum ástæðum en líka verndað vegna þess að þetta gefur byggðunum gildi. Ég tala nú ekki um þar sem nokkur svona hús standa saman og úr verður aðlaðandi og sterk heild. Það er tækifæri til þess að ná markmiðum laganna en vernda um leið þessa byggð og það er ekki miklu fórnað með því hvað varðar praktísk sjónarmið, ef svo má segja, því að hús byggð á þessu gullaldartímabili steinsteypuklassíkurinnar íslensku eru vel innan við 1% af húsum landsins. Ekkert annað Evrópuríki er með eins lágt hlutfall af því sem kalla má sögulega byggð, byggð frá þeim tíma þegar byggt var með stíleinkennum hvers svæðis og sögu þess svæðis og menningar þess lands. Hlutfallið er langlægst á Íslandi, mig minnir að Finnland komi þar næst. Það er í rauninni mikil synd hvað við eigum lítið af þessari sögulegu byggð og við megum illa við því að missa það sem þó er eftir. Því legg ég fram þessa litlu en þó mikilvægu breytingartillögu við frumvarpið sem þá heldur sér að öllu öðru leyti nema viðmiðunarárið, þar sem skorið verði á gildi laganna sem núverandi hæstv. forsætisráðherra hafði veg og vanda af að setja á sínum tíma, að það verði ekki 1923 heldur 1930 og þetta langt innan við 1% af byggingum landsins, og það hlutfall fer auðvitað alltaf lækkandi, verði varðveitt eins og kostur er.

Eins og ég nefndi áðan, það er ekki bara spurning um menningarlegt gildi. Þetta er líka spurning um að fólk hafi aðlaðandi umhverfi, sameiginleg svæði borgarbúa eins og má segja til að mynda að miðbærinn í Reykjavík sé, og þetta hefur líka efnahagslegt gildi. Hvert sækja til að mynda ferðamenn? Þeir sækja í söguna og það sem er einkennandi fyrir byggðina. Þessi byggingarstíll, steinsteypuklassíkin, er einkennandi fyrir byggð á Íslandi og merkilegt framlag okkar til byggingarsögu og það væri mikil synd ef við, að óþörfu, gerðum breytingar á þessum annars góðu lögum sem kæmu í veg fyrir að við verndum það sem við eigum eftir af þessu.