menningarminjar.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um menningarminjar, nr. 80/2012 (aldursfriðun húsa og mannvirkja). Tillagan hljóðar þannig að í stað ártalsins 1930 í 2. gr. komi 1940.
Breytingartillaga þessi varðar umsagnarskyldu skv. 30. gr. laga um menningarminjar, nr. 80/2012. Sú breyting sem lögð er til í frumvarpinu er óveruleg í árum talið á viðburðaríkum uppbyggingartímum í sögu Íslands og lagt er til að í stað ársins 1930 verði miðað við árið 1940. Breyting frá núgildandi lögum nemur því 15 árum.
Árin 1925–1940 voru umbrotatímar í íslensku þjóðfélagi og ollu því m.a. atburðir utan landsteinanna, svo sem kreppan mikla og aðdragandi síðari heimsstyrjaldarinnar. Allt hafði þetta í för með sér miklar samfélagsbreytingar og áhrif á húsagerð á Íslandi. Með tillögu þessari er stigið skref í átt að þeim sjónarmiðum sem fram komu í umsögnum um frumvarpið, m.a. frá Íslandsdeild ICOMOS.
Að þessu sögðu er hér ekki um svo mikla breytingu að ræða þannig að hún hafi afgerandi áhrif en hún lengir þetta tímabil, umsagnartímabil sem er þá skyldugt að leita eftir — eða húseigendur sem búa í húseignum sem eru frá þessum árum þurfa þá að leita umsagnar hjá Minjastofnun áður en þeir fara í einhverjar framkvæmdir. Hér er hins vegar ekki um íþyngjandi ákvæði að ræða þannig að ég tel að hér sé um skynsamlega breytingu að ræða sem eins og áður segir nær yfir breiðara tímabil. Þeir sem ég hef rætt við sem best til þekkja í þessum geira eru hlynntir þessari tillögu.