menningarminjar.
Frú forseti. Fyrir hönd okkar allra í Flokki fólksins lýsi ég yfir mikilli gleði með allt sem lýtur að sögu okkar og minjum, menningarverðmætum. En ég kem hingað upp sérstaklega til þess að þakka öllu fólkinu okkar fyrir frábæran þingvetur og ég verð að viðurkenna að ég veit ekki hvort maður má hafa húmor í þinginu, sérstaklega þegar við erum enn að ræða málin, en undir þessum dagskrárlið er ég samt sem áður að segja: Þið eruð náttúrlega frábær og ég veit að við getum gert betur eftir áramót og við munum gera það. Það skriplar oft á skötu og við erum að pikka og pota hvert í annað en það var samt svona hrekkjabragð að setja allan þingflokkinn á mælendaskrá og athuga hvort við fengjum ekki almennileg viðbrögð hérna frammi vegna þess að við erum orðin langþreytt eftir því að fá að komast heim. Fyrir hönd Flokks fólksins segi ég bara: Gleðileg jól og gæfuríkt ár.