153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[16:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gera grein fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (skráning samninga og breytinga á leigufjárhæð). Við meðferð málsins barst ábending varðandi afmörkun kæruheimildar, heimildar til að bera lögmæti leigufjárhæðar undir kærunefnd. Því lagði meiri hlutinn til breytingartillögu þar sem hann taldi ástæðu til að skýra þessa heimild nánar, tímafrest samningsaðila til að kæra. Meiri hlutinn lagði fram við 2. umr. breytingartillögu þar sem lagt var til að þessi frestur yrði einn mánuður. Sú tillaga var dregin til baka og nú legg ég hér fram í mínu nafni breytingu þess efnis að kærufresturinn verði þrír mánuðir og byggist sú tillaga um þriggja mánaða frest á meginreglu stjórnsýslulaga um kærufresti.

Að lokum vil ég geta þess, sem þó hefur komið ítrekað fram í umræðunni um málið, að hér er um að ræða fyrsta skref í endurskoðun húsaleigulaga á kjörtímabilinu með það fyrir augum að bæta húsnæðisöryggi og réttarstöðu leigjenda með traustri lagaumgjörð. Það kann að vera að fleiri atriði varðandi kærufrestinn þarfnist betri afmörkunar og þá mikilvægt að það komi fram í þeirri vinnu sem nú stendur yfir til undirbúnings heildarendurskoðunar húsaleigulaga.