153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

úrvinnslugjald.

572. mál
[17:03]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hingað upp sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar með breytingartillögu við frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald (hringrásarhagkerfi, umbúðatafla, reiknireglur, viðaukar). Með breytingunni er lagt til að í stað þess að lagt verði úrvinnslugjald á hvert kílógramm tiltekinna rafhlaða og rafgeyma, sem kveðið er á um í viðauka XI við lög um úrvinnslugjald, verði fast gjald lagt á tollskrárnúmerin. Um er að ræða breytingar á álagningu vegna tíu tollskrárnúmera í frumvarpinu en til einföldunar er lagt til að viðaukinn verði tekinn upp í heild sinni. Að óbreyttu þyrfti að skrá tvö númer í lítrasvæði á tollskýrslu þar sem eingöngu er hægt að skrá eitt. Breytingartillagan er unnin í samráði við umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og Úrvinnslusjóð.