153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[17:51]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessari tillögu að þessu sinni vegna þess að það eru fyrirheit um að fram fari heildarendurskoðun á þessum lögum. Ég ætla hins vegar að nota þetta tækifæri til að taka undir með hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni hvað varðar þau sjónarmið sem hann viðraði hér áðan varðandi síðari tíma byggingarlist. Hér er verið að afnema 100 ára regluna og festa í sessi eitt ártal og ég tel að það kalli á raunverulega umræðu á vettvangi þingsins um hvernig við ætlum að meðhöndla síðari tíma byggingarlist, eins og hv. þingmaður bendir á. Ég ítreka það að ég hef miklar væntingar til þeirrar vinnu sem er fram undan og tel mikilvægt að við tökum afstöðu í þessum efnum, en nefni einnig hér þá breytingartillögu sem hv. þm. Birgir Þórarinsson flytur sem gerir ráð fyrir að umsagnar sé leitað vegna húsa sem eru byggð síðar, sem ég held að sé góð breyting á þessu máli. En þetta er ástæðan fyrir því að ég styð ekki þessa tillögu hér í dag.