153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

menningarminjar.

429. mál
[17:52]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég sé að þessi breytingartillaga er samþykkt og ég tel það til góðs vegna þess að þá nær ákvæðið tilgangi sínum um að það þurfi að leita álits Minjastofnunar ef hús sem njóta ekki friðunar voru byggð fyrir 1925. Samkvæmt breytingartillögunni verður þetta nú 1940. Þá náum við yfir fúnksjónalismann sem tók við af nýklassískri þjóðlegri rómantík árið 1930, sem er mjög mikilvægt. Ég tel þetta mjög góða breytingu og segi já.