menningarminjar.
Herra forseti. Þessi tillaga er til bóta og ég styð hana en hún snýst um að það sé leitað umsagnar. Gott og vel. Það sem veldur manni hins vegar áhyggjum er reynslan af annars ágætu frumvarpi sem við erum að ræða að breyta hér og hæstv. forsætisráðherra á heiður skilinn fyrir að hafa innleitt á sínum tíma. Það var einfaldlega allt of oft farið fram hjá þeim lögum. Það mun reynast mjög auðvelt að fara fram hjá því að leitað sé umsagnar því að hvergi er þrýstingurinn eins mikill á stjórnmálamenn og þegar ákvarðanir eru teknar í skipulagsmálum. Hvergi er eins mikil hætta á að menn láti undan við ákvarðanatöku eins og í skipulagsmálum. En fyrst og fremst sjáum við, herra forseti, að það eina sem skiptir máli hérna með þessar atkvæðagreiðslur allar í dag er hvaðan tillögurnar koma, úr hvaða flokki þeir eru sem leggja þær fram.