153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[17:56]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Ég vona að meiri hlutinn geri sér grein fyrir hvaða áhrif þessi breyting sem var verið að henda inn í málið á lokametrunum getur haft inn í kjarasamningsviðræðurnar. Fulltrúi ASÍ sem var kallaður inn á síðustu stundu í hv. velferðarnefnd að minni beiðni vegna þessarar breytingartillögu sagði að breytingarnar gætu hreinlega tekið botninn úr þeirri miklu vinnu sem væri núna í gangi vegna kjarasamninga um allan vinnumarkaðinn. Ég vil bara minna meiri hlutann á að þetta getur haft veruleg áhrif á allan markaðinn og allar þær viðræður.