153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[17:57]
Horfa

Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég byrja á að taka það fram að ég blæs á það að samráðsleysi hafi verið við vinnu þessa frumvarps í velferðarnefnd. Mikið samráð var haft og öflugt samtal við hina ýmsu aðila, jafnframt er hálf blaðsíða í nefndaráliti þar sem er tilgreint hverjir komu fyrir nefndina og hverjir skiluðu inn umsögnum. Við erum að taka gott frumvarp og gera það enn þá betra með þeirri vinnu sem hefur átt sér stað í velferðarnefnd. Eftir þá vinnu er mín tilfinning sú að við séum að ná utan um meiri hluta þeirra leigusamninga sem gerðir eru. Breytingartillaga hv. þm. Líneikar Önnu Sævarsdóttur er til komin einmitt vegna þess að það var hlustað á ASÍ á fundi nefndarinnar í dag. Við erum að mæta þeim sjónarmiðum og heildarendurskoðun er væntanleg á þessum málum þar sem aðilar vinnumarkaðarins fá aðkomu.