153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[17:58]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka nefndinni og þinginu fyrir að ná að ljúka þessu máli sem hefur verið til umfjöllunar hér í þingsal í nokkuð langan tíma. Þær breytingar sem hafa orðið á einu af markmiðunum um skráningarskylduna vona ég að hafi ekki áhrif á þau markmið sem áttu að nást með frumvarpinu. Ég vil þó segja að þeir aðilar sem munu koma að vinnunni héðan í frá, aðilar sem láta þá sem eru á leigumarkaði sig mjög miklu varða, munu koma inn í vinnuna hjá ríkisvaldinu til að bæta réttarstöðu leigjenda enn frekar og umhverfið á leigumarkaði. Ég er sannfærður um að það muni skila sér í þinginu, jafnvel strax í vor, með frumvörpum. (Forseti hringir.) Þá munum við taka til skoðunar ef hér hefur eitthvað farið úrskeiðis.