153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[17:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Almennt séð eigum við að reyna að vanda okkur í vinnunni hérna. Þegar það eru rosalega miklar breytingar eins og hafa verið á nokkrum málum hérna þá gerir það okkur þingmönnum pínulítið erfiðara fyrir að meta heildarsamhengi breytingartillagnanna, t.d. af því að við höfum ekki umsagnir þeirra hagsmunaaðila sem eru í rauninni oft sérfræðingar í málunum. Ég vil kannski minna hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur á að breytingartillagan sem liggur fyrir hérna hefur ekki verið til umræðu í þrjár umræður, ef hún tekur mark á eigin orðum.