húsaleigulög.
Herra forseti. Það hefur verið haft víðtækt samráð við ýmsa hagaðila við samningu frumvarpsins og er það vel. En eftir að teknar eru ákvarðanir um að gjörbreyta frumvarpinu í gærkvöldi, að því er virðist, hefur auðvitað ekki verið haft samráð. Því er það ekki rétt sem kom fram í máli hv. þingmanns. Meginþungi gagnrýni ASÍ á fundi hv. velferðarnefndar áðan sneri að því að verið er að fella niður skráningarskyldu á a.m.k. helmingi leiguhúsnæðis í landinu. Það var meginþunginn. Vissulega var bent á að kærufresturinn væri allt of skammur, kærufresturinn sem var í breytingartillögunum sem voru felldar út var einn mánuður sem hefur nú verið breytt í þrjá mánuði. En meginþunginn var skráningarskyldan og um það hljóta allir sem sátu þennan fund að vera sammála. Það er ákvæði sem meiri hlutinn ákveður að hreyfa ekki við og er það ákvæði sem fulltrúi ASÍ á fundinum sagði að gæti hleypt öllum kjarasamningsviðræðum upp í loft.