húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Jú, það var kannski haft samráð á fyrri stigum við vinnslu frumvarpsins en í gær voru lagðar fram viðamiklar breytingartillögur, degi fyrir atkvæðagreiðslu og degi áður en þetta verður samþykkt sem lög frá Alþingi. Þetta er það sem ASÍ sagði að væri eins og blaut tuska í andlitið. Það var ekki haft samráð um þessar breytingartillögur og ég er að tala um það.
Varðandi samráðsleysið þá snýst þetta líka um að breytingartillögur eru lagðar fram svo seint, í skjóli nætur, sem snerta á rosalega miklu og eru á skjön við það sem sumir hagsmunaaðilar hafa talað um að sé nauðsynlegt að breyta. Af því að hv. þm. Óli Björn Kárason hrópaði að það hefði verið haft samráð á fyrri stigum málsins þá vil ég ítreka, eins og ég sagði við hv. þm. Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur, að það er rétt. En eftir breytingartillögurnar í gær þá tel ég að við hefðum mátt fara aðeins betur að þessu.