húsaleigulög.
Herra forseti. Ég hjó líka eftir orðum hæstv. innviðaráðherra. Hann sagðist vera á leiðinni með frumvörp hér með vorinu og ef eitthvað færi úrskeiðis hér í dag myndi hann kannski græja það í vor. Af hverju þá ekki að bíða með þessa breytingu til vorsins? Af hverju ekki að meta hvort það að taka helming af leigumarkaðnum út úr skráningarskyldunni hafi mögulega einhver áhrif á þær upplýsingar sem koma út úr skránni? Hvaða helming er verið að taka? Það er verið að taka þær íbúðir sem eru ekki í eigu t.d. hrægammaleigufélaganna. Það er verið að taka út úr jöfnunni þær íbúðir sem má ætla að séu kannski leigðar á sem sanngjörnustu verði. Þar með er verið að búa til gagnasafn sem spýtir út úr sér hæstu mögulegu vísitölu á leigumarkaðsverði sem hrægammaleigufélögin nota síðan til að hækka verð enn meira. Því eru stjórnarliðar, með því að samþykkja þetta og ætla síðan að tékka á því í vor hvort mistök hafi verið gerð, að taka rosalegt veðmál á kostnað leigjenda.