jólakveðjur.
Hv. alþingismenn. Nú er komið að lokum síðasta fundar Alþingis fyrir jólahlé. Við þetta tækifæri vil ég þakka varaforsetum samstarfið og formönnum þingflokka og formönnum stjórnmálaflokka fyrir góða samvinnu við skipulag þingstarfanna. Iðulega reynir á í þessu samstarfi og skoðanir eru oft skiptar, eins og eðlilegt er, en mestu skiptir að ná niðurstöðu að lokum.
Ég vil líka láta í ljós ánægju mína með að okkur hefur tekist að ljúka störfum fyrir jólahlé á þeim degi sem að var stefnt samkvæmt starfsáætlun Alþingis. Það er mikilvægt að alþingismenn geti skipulagt störf sín vel á grundvelli starfsáætlunar því að kröfur eru gerðar til þingmanna um þátttöku í margvíslegu stjórnmálastarfi utan þings.
Á þessu haustþingi voru framlögð stjórnarfrumvörp 51 talsins og stjórnartillögur sjö. Þá hafa 96 þingmannafrumvörp og 113 þingmannatillögur verið lagðar fram. Til viðbótar hafa nefndir lagt fram þrjú frumvörp. Af þessum fjölda hafa 23 stjórnarfrumvörp orðið að lögum, þrjú nefndarfrumvörp og eitt þingmannafrumvarp og sex stjórnartillögur hafa verið samþykktar.
Það er ólíku saman að jafna með kringumstæður við frestun þingfunda fyrir jólahlé núna samanborið við aðstæður í fyrra. Þá var þingfundum frestað nálægt áramótum en að vísu kom Alþingi óvenjuseint saman að loknum haustkosningum 2021. Í fyrra geisaði heimsfaraldur kórónuveirunnar og lágu margir þingmenn veikir er leið að lokum haustþings, þar á meðal sá sem hér talar. Í ár kom þing hins vegar saman á hefðbundnum samkomudegi Alþingis annan þriðjudag í september og þingsetningarathöfn var í fyrsta sinn frá árinu 2019 haldin án takmarkana. Haustþingið hefur því í stórum dráttum verið með hefðbundnu sniði og sóttvarnatakmarkanir af völdum veirufaraldursins að baki, sem betur fer.
En þótt áhrif heimsfaraldurs dvíni þá steðja aðrar ógnir að heima sem erlendis, bæði af völdum náttúru og manna. Skáldkonan Hulda orti, í tilefni stofnunar lýðveldisins er heimsstyrjöldin síðari geisaði, um lán okkar Íslendinga að búa svo langt frá heimsins vígaslóð, eins og þingmenn þekkja. En nú, rétt 78 árum síðar, geisar stríð á ný í Evrópu. Innrásarstríð rússneskra stjórnvalda hefur staðið í tæpa tíu mánuði með ómældum hörmungum fyrir úkraínska þjóð og land og óbeinna áhrifa stríðsins gætir langt út fyrir landamæri Úkraínu.
Hv. alþingismenn. Ég ítreka þakkir mínar fyrir ágætt samstarf. Ég færi starfsfólki Alþingis þakkir fyrir þeirra góðu störf. Ég óska öllum farsældar og friðar á nýju ári og þeim sem eiga um langan veg heim að fara óska ég góðrar heimferðar og góðrar heimkomu og bið þess að við megum öll hittast heil á nýju ári.
Landsmönnum öllum sendi ég mínar bestu jóla- og nýársóskir.