153. löggjafarþing — 52. fundur,  16. des. 2022.

þingfrestun.

[18:14]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. „Forseti Íslands gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 153. löggjafarþings, frá 16. desember 2022 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 23. janúar 2023.

Gjört á Bessastöðum, 16. desember 2022.

Guðni Th. Jóhannesson.

__________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til tillögunnar sem var samþykkt hér fyrr í dag þá lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 153. löggjafarþings, er frestað.

Ég vil þakka hv. alþingismönnum og starfsfólki Alþingis fyrir gott samstarf og óska ykkur öllum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.