153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

Framhaldsfundir Alþingis.

[15:02]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Gefið hefur verið út svohljóðandi bréf, sem ég hyggst lesa í fjarveru hæstv. forsætisráðherra:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Ég hefi ákveðið, samkvæmt tillögu forsætisráðherra, að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 23. janúar 2023 kl. 15:00.

Gjört á Bessastöðum, 18. janúar 2023.

Guðni Th. Jóhannesson.

 

________________

Katrín Jakobsdóttir.

 

Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda.“

Ég vil nota tækifærið hér að loknum lestri þessa bréfs og bjóða hæstv. forseta og hv. þingmenn velkomna til þingfunda starfa á nýju ári.