mannabreytingar í nefndum.
Forseti vill tilkynna að honum hafa borist erindi um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa. Fyrst frá þingflokki Framsóknarflokks um að Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir taki sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í stað Ágústs Bjarna Garðarssonar en hann verði varamaður í sömu nefnd í stað Lilju Rannveigar.
Þá frá þingflokki Samfylkingarinnar þannig að Kristrún Frostadóttir taki sæti sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd í stað Jóhanns Páls Jóhannssonar og Logi Einarsson verði varamaður í hennar stað í sömu nefnd. Þá tekur Jóhann Páll Jóhannsson taki sæti sem aðalmaður í fjárlaganefnd í stað Kristrúnar Frostadóttur sem tekur sæti hans sem varamaður í sömu nefnd.
Að lokum frá þingflokki Sjálfstæðisflokksins um að Birgir Þórarinsson taki sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu í stað Bryndísar Haraldsdóttur en hún verði varamaður í hans stað í sömu nefnd.
Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.