153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

fríverslunarsamningur við Breta.

[15:11]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þessari ríkisstjórn hefur verið tíðrætt um tækifæri fyrir Ísland sem felast í Brexit. Það kom á daginn að þau voru í rauninni ekki mörg en það gafst eitt raunverulegt tækifæri sem glataðist. Því tækifæri klúðraði ríkisstjórnin. Bretar buðu nefnilega í fríverslunarviðræður um tollfríðindi fyrir íslenskar sjávarafurðir umfram það sem við Íslendingar höfum haft í gegnum EES-samninginn við ESB. Bretar voru tilbúnir til þess að opna fyrir þær afurðir sem falla ekki lengur undir EES-samninginn og við höfum aukið núna á síðustu árum.

Hvert átti síðan mótframlag Íslands að vera? Það snerist um að víkka út fríverslun með landbúnaðarvörur umfram tollfrjálsa kvóta byggða á viðskiptum undanfarinna ára. Bretar fóru sem sagt fram á svolitla stækkun á kvóta fyrir osta og kjöt inn á íslenska markaðinn og þeir buðu líka umtalsverða tollkvóta fyrir íslenskt undanrennuduft. Hins vegar settu hagsmunaaðilar í íslenskum landbúnaði þrýsting á stjórnvöld og bakkaði ríkisstjórn Íslands síðan út úr málinu.

Tækifæri glataðist, þetta eina tækifæri sem Brexit fól í sér fyrir Ísland. Hver er síðan staðan í dag á íslensku samfélagi? Matvælaverð hefur hækkað verulega og er orðið einn stærsti útgjaldaliður heimilanna. Við sjáum að vörur sem eru undanþegnar samkeppnislögum og varðar með tollum og gjöldum leiða vagninn í þessum verðlagshækkunum. Við skulum hafa í huga að ríkisstjórnin hefur nokkur vopn í vopnabúrinu á svona dýrtíðartímum. Eitt af þeim er m.a. að lækka tolla, lækka vörugjöld, auka frelsi og auka samkeppni á markaði. Við sem trúum á markaðinn og trúum því að samkeppni geti leitt af sér breytingar til hagsbóta fyrir heimilin í landinu hljótum því að spyrja ríkisstjórnina hvort hún ætli ekki að gera eitthvað í því að reyna að lækka m.a. matvælaverð fyrir heimilin í landinu. Hluti af því er m.a. að auka vöruval og opna markaðinn. Þess vegna vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort hann muni beita sér fyrir því að taka upp samninga að nýju við Breta og virkja (Forseti hringir.) að nýju tækifæri til að treysta stöðu neytenda, sjávarútvegs og ekki síður landbúnaðarins hér á Íslandi.