153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

fríverslunarsamningur við Breta.

[15:14]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er rétt að í upphafi viðræðna var það skýrt markmið að bæta markaðsaðgang fyrir sjávarafurðir til Bretlands miðað við það sem gilti undir EES-samningnum en í þeim viðræðum var fljótt ljóst að Bretar gerðu á móti mjög miklar kröfur um markaðsaðgang fyrir landbúnaðarafurðir til Íslands. Þar af leiðandi var það mat manna á þeim tíma að fullt tollfrelsi fyrir sjávarafurðir hefði einfaldlega verið of dýru verði keypt. Það er það sem við finnum fyrir þegar við erum í viðræðum um frekari markaðsaðgang. Það sama á nú reyndar við í okkar samtali við Evrópusambandið þar sem við höfum mjög markvisst og ríkulega gert kröfur um að fá betri og ríkari aðgang með okkar sjávarafurðir inn á Evrópumarkað. Staðan er núna þannig að Evrópusambandið hefur gert samninga við þriðju ríki sem eru betri heldur en við fáum í gegnum EES-samninginn. Það er því ekki þannig að það sé ekki almennt erfitt að ná þessu fram í viðræðum. Vissulega er í þeim tilfellum um að ræða ríki sem eru með margfalt minna magn af sjávarafurðum sem eru að koma inn á markað heldur en við erum með hér en það breytir því ekki að við höldum því sterkt á lofti að í gegnum EES-samninginn eigi að vera betra markaðsaðgengi fyrir okkar vörur.

Ég vil nefna það í lokin að það er ekki þannig að matvælaverð hafi ekki hækkað annars staðar. Í Þýskalandi hækkaði matvælaverð til að mynda, að mér skilst, um 20% á liðnu ári. Það er eitthvað sem fleiri en við á Íslandi standa frammi fyrir. En stutta svarið er að fullt tollfrelsi fyrir sjávarafurðir hefði verið of dýru verði keypt.