viðbrögð stjórnvalda vegna hælisleitenda.
Virðulegi forseti. Það er skiljanlegt að hv. þingmaður taki málið upp ítrekað. Ég vil leyfa mér að líta þannig á að það sé í raun og veru ráðherrann sem er að spyrja þingið hvort það sé von á einhverju vegna þess að málið sem liggur fyrir þinginu hefur verið marglagt fram og hefur tekið breytingum í samræmi við athugasemdir og meðferð í nefndum og er ekki að koma í fyrsta sinn og ekki í annað sinn og ekki í þriðja sinn. Það hefur komið oftar en það, efnislega nokkurn veginn sama málið. Það sem við viljum geta gert í hælisleitendamálum er að nýta þá fjármuni, þau úrræði sem við getum boðið upp á til að taka á móti fólki sem er í raunverulegri neyð og þörf fyrir skjól á Íslandi og það eru svo sannarlega algerlega óumdeild dæmi um slíkt. Það sem hefur hins vegar orðið mikið ágreiningsefni hér í þinginu og víðar í samfélaginu eru hin tilvikin þar sem við höfum farið í gegnum alla ferlana og komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði séu ekki uppfyllt og það koma sífellt upp nýir fletir á slík mál. Við þekkjum óvænta aukningu hælisleitenda t.d. frá Venesúela og alls konar sögusagnir í tengslum við þær umsóknir en við sjáum líka óvenju mörg mál enda í kæruferli. Við höfum verið með sérstakar reglur um tímafresti eftir að kæra hefur verið lögð fram þegar börn eiga í hlut, sem er á sinn hátt séríslensk regla. Allt hefur þetta leitt til þess að við höfum orðið fyrir feikilega miklum kostnaðarauka. Það er ástæða til að taka því alvarlega að það séu lægri þröskuldar inn í hælisleitendakerfið á Íslandi en annars staðar vegna þess að því marki sem það er að valda auknu álagi á kerfið okkar er það að gerast í dag á tíma þar sem leikskólar eru fullir og það er ástand á húsnæðismarkaði. Það er ekki mikið húsnæði til, sem hefur síðan verið sérstakt fréttaefni núna að undanförnu um það hvort við getum yfir höfuð boðið fullnægjandi húsnæði í mörgum tilvikum. (Forseti hringir.) Þannig að já, þetta er mjög stór málaflokkur. Málið er á dagskrá á Alþingi í dag og mér finnst að ráðherrann eigi skilið að fá svör frá þinginu hvort eigi ekki að fara að afgreiða eitthvað af þessum tillögum.