menntunarstig á Íslandi.
Virðulegur forseti. Ég hef móttekið kröfur námsmanna, bæði LÍS, SÍNE, Sambands íslenskra námsmanna erlendis, og Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þær eru nýkomnar til mín og verða hafðar til hliðsjónar í þeirri vinnu sem fram fer á þessu ári við að leggja mat á hvaða endurskoðun þarf að gera á nýjum lögum. Kerfinu var gjörbylt hér í sátt á Alþingi sem samþykkti stórar breytingar á Menntasjóði námsmanna. Það er líka spurning hversu miklar breytingar er þörf á að ráðast í núna, hversu mikil reynsla hefur í raun komist á kerfið. Ég ætla ekki að fara í efnislega umræðu um þær kröfur sem hafa komið fram en þar eru auðvitað ýmsar áskoranir. Grunnframfærslan var m.a. hækkuð mikið í fyrra til allra stúdenta sem bætti hag þeirra verulega frá því sem áður var og var mikil ánægja meðal stúdenta vegna þess. Við þurfum síðan að sjá hvaða skref við tökum næst í þessari heildarendurskoðun en þessi tími er því miður of stuttur til að ræða háskólastigið í heild sinni og stöðu stúdenta.