153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

greiðslubyrði heimilanna .

[15:35]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Staðan er sú að með þeim kjarasamningum sem nýlega hafa verið gerðir og í ljósi þess hvernig verðbólgunni er spáð á þessu ári er allt útlit fyrir að kaupmáttur heimilanna haldi áfram að vaxa á árinu 2023. Auðvitað er það rétt að ef við hækkum krónutölugjöld ríkisins og tryggjum þannig að þau haldi í við verðlag hefur það einhver áhrif á verðbólguna. En við þurfum að svara því hvaða áhrif það hefur á verðbólguna og við svöruðum því í þingskjalinu sem lá fyrir þinginu, áhrifin voru í kringum 0,2% á ári. Þessar stóru breytingar sem hafa verið að keyra verðbólguna áfram á Íslandi eru af allt öðrum toga. Þar fer saman annars vegar mikil hækkun á húsnæðisverði, sem við sjáum fyrir endann á miðað við nýjustu tölurnar, en við höfum líka séð miklar hækkanir á aðföngum til landsins sem er erfitt að berjast við með vaxtahækkunum eða öðrum hætti. Við hljótum hins vegar að þurfa að stilla saman þessa arma ríkisvaldsins, í fyrsta lagi vinnumarkaðinn og síðan framkvæmd peningastefnunnar, til að þeir séu að toga í sömu átt til að hafa þau áhrif sem hægt er. Ég hef ágætis væntingar um að staða heimilanna verði varin til skamms tíma með þessum kjarasamningum og miðað við þær horfur sem við sjáum fram á núna. Þetta er allt önnur og miklu betri staða heldur en víða á við í Evrópu þar sem kaupmáttur er um þessar mundir að hrynja og ríkissjóðir eiga í mesta basli með að láta opinberar bætur fylgja verðlagi, svo að dæmi sé tekið, eins og við sáum í Bretlandi fyrir áramótin. Það varð þó á endanum niðurstaðan að bætur hækkuðu í samræmi við verðlag.

Og staða heimilanna, það eru til dæmi eins og hv. þingmaður rekur hér en þetta er ekki lýsandi dæmi almennt fyrir stöðu heimilanna sem eru í dag með betri greiðslustöðu í (Forseti hringir.) viðskiptabankakerfinu á Íslandi heldur en fyrir faraldurinn.