153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

greiðslubyrði heimilanna .

[15:40]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Fyrst vil ég segja að ég hef ekki hvatt fólk til að taka eitt lánsform umfram annað fyrir sig. (Gripið fram í.)Ég hef hins vegar verið talsmaður þess að fólk hafi frelsi til að velja á milli ólíkra kosta. Það er tilfellið með verðtryggð lán að þau bjóða lántakandanum upp á minni mánaðarlega greiðslubyrði, sérstaklega þessi dæmigerðu verðtryggðu lán, sem getur verið algjör lífsbjörg fyrir þá sem hafa tekið óverðtryggt lán og eru núna að upplifa mikla hækkun á greiðslubyrðinni. Það er ástæðan fyrir því að við börðumst fyrir því, Sjálfstæðismenn á sínum tíma, að fella niður stimpilgjöldin af endurfjármögnun slíkra lána, vegna þess að það væri ósanngjarnt að ríkið ætti að hafa af því tekjur þegar fólk væri að koma sér í frekara skjól. Dæmin sem við vitum um úr fjármálakerfinu eru um það að margir hafi nýtt sér þennan kost. Ég verð að lýsa mikilli furðu þegar ég heyri ítrekað hér í þingsal að fólk vilji bara loka þessum dyrum, banna fólki að veita sér þessa björg. Og hvað á þá að gera í staðinn? (ÁLÞ: Lengja í láninu.)Hvað á þá að gera í staðinn? spyr ég hv. þingmann. (Forseti hringir.) Lengja í láninu, er sagt. Það er ekki að fara að bjarga neinum. (Forseti hringir.) Hérna er einfaldlega um að ræða úrræði sem hefur verið umdeilt lengi og getur gagnast og það er að gagnast núna. Eða er (Forseti hringir.) allt þetta fólk að taka rangar ákvarðanir að mati hv. þingmanns?