staða byggingarrannsókna og nýsköpunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Þetta voru fjöldamargar spurningar um Nýsköpunarmiðstöð og hvernig hefur verið staðið að þróun nýsköpunarstuðnings, bæði á landsbyggðinni, í byggingarrannsóknum og rannsóknum á myglu. Öll aðstaða gagnvart byggingarrannsóknunum, m.a. varðandi mygluna, og tækin og fólkið fór í Tæknisetrið sem var komið á fót. Þá var gerður sérstakur samningur við Háskólann í Reykjavík um byggingarrannsóknir á myglu sem er einmitt að halda ráðstefnu í dag um myglu og rakaskemmdir. Þá var komið á fót líka samkeppnissjóði byggingarrannsókna og það var mjög mikilvægt til að setja fjármuni í þær hugmyndir sem eru til þess að leysa vandann ekki síst og ýta undir rannsóknir á þessu sviði. Úthlutun fór fram í fyrra og fer aftur fram núna fljótlega í samráði við innviðaráðherra. Ég held að með þessum breytingum hafi fjármununum verið varið miklu betur. Þeim var varið í fólk, hugmyndir og rannsóknir en ekki yfirbyggingu. Ég tel að þessi ákvörðun fyrrverandi iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hafi verið til góðs og ég heyri það í samfélagi nýsköpunar og iðnaðar að það er tekið undir það, þetta hafi ýtt undir það að fjármunum væri beint á rétta staði, bæði með bættri forgangsröðun og minni yfirbyggingu og síðan meiri sveigjanleika. Hv. þingmaður kemur síðan almennt inn á stuðninginn á landsbyggðinni í heild. Sjóðurinn Lóa var settur á fót sem styður sérstaklega við nýsköpun á landsbyggðinni og ég held að það sama eigi við þar. Þar hafa fjármunirnir frekar farið beint í hugmyndirnar og til fólksins um allt land og hefur 100 milljörðum verið varið á síðustu árum í landsbyggðina og árangurinn mjög góður víðast hvar um landið. Það sést ekki síst á öllu stuðningsumhverfi nýsköpunar, þar hefur Rannís sett á fót gagnatorg þar sem hægt er að sjá hvernig árangurshlutfall allra svæða á landsbyggðinni er (Forseti hringir.) gagnvart t.d. stóru fjármununum eins og í endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar.