153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:22]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er kannski pínulítið þarna sem ég fer að óttast af því að í dag er það svo að ef sérstakar aðstæður eru uppi hjá einstaklingi þá má veita einstaklingnum áframhaldandi þjónustu samkvæmt þeim tillögum sem liggja fyrir. Nú á að einskorða þetta algerlega við eitthvað sem heitir að vera samstarfsfús. Ég hef áhyggjur af því að það vanti algjörlega að skoða aðstæður einstaklinganna. Það er verið að fella niður þjónustuviðtölin hjá Útlendingastofnun þar sem er verið að fara ofan í þörf einstaklingsins fyrir sérstaka þjónustu. Nú er verið að færa ákvörðun um hvort veita eigi undanþágu frá niðurfellingu þjónustu frá þeim sem hafa gögnin hjá sér til lögreglu sem hefur engin gögn og hv. þingmaður upplýsir hér að eingöngu eigi að miða við hvort viðkomandi sé samstarfsfús eða ekki. Á ekkert að horfa á aðstæður einstaklinganna og þörf þeirra fyrir áframhaldandi þjónustu? Er það þannig að stjórnarflokkarnir þrír, Vinstri græn, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur, (Forseti hringir.) ætli bara að fylgja hörðustu útlendingastefnu Sjálfstæðisflokksins sem sést hefur og líta ekkert á aðstæður einstaklinganna? (Forseti hringir.) Þetta er skýrt brot á ákvæðum flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.