153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[16:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að hér sé um reginmisskilning að ræða hjá hv. þingmanni. Við skulum fyrst og fremst benda á að samkvæmt frumvarpinu eru víðtækar undanþágur gagnvart því að falla ekki úr þjónustu. Þær eru skilgreindar sérstaklega í lögunum. Það eru ófrískar konur, börn og fjölskyldur þeirra, langveikt fólk, fatlað fólk og aðrir sem eru undanþegnir þessu. En svo held ég að það sé líka rosalega mikilvægt að fólk hafi í huga hvað við eigum við. Við eigum við það að fólk hefur komið hingað til lands og sótt um alþjóðlega vernd. Það hefur fengið synjun hjá Útlendingastofnun vegna þess að Útlendingastofnun (Gripið fram í.) telur það ekki falla undir það sem alþjóðaskuldbindingar okkar segja til um og lögin segja til um. Þessir aðilar hafa kært til kærunefndar útlendingamála og kærunefnd hefur komist að sömu niðurstöðu. Þegar fólk hefur fengið synjun á tveimur stjórnsýslustigum er eðlilegt að það fólk fari af landi brott. (Gripið fram í.) Við gefum fólki 30 daga til að koma sér úr landi. Og alveg eins og hv. þingmaður þekkir vel og við höfum tekið djúpa umræðu um í nefndinni þá er reynt (Forseti hringir.) til hins ýtrasta að aðstoða fólk við endurkomu til síns lands. Aðstæður geta breyst, (Forseti hringir.) það er alveg rétt, og þess vegna taka undanþáguákvæðin mjög vel utan um það í þessu frumvarpi. (Gripið fram í.)

(Forseti (LínS): Forseti vill ítreka að ræðutími er ein mínúta í seinni umferð.)