útlendingar.
Frsm. 3. minni hluta allsh.- og menntmn. (Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir) (P) (andsvar):
Frú forseti. Ég gæti svo sem staðið hér í allan dag og átt þetta samtal við hv. þingmann til að reyna að skilja hvernig í ósköpunum hv. þingmanni og fleirum hér dettur í hug að hleypa máli af þessu tagi hér í gegn. Ekki bara vegna þeirra mannvonsku sem liggur þar að baki, heldur vegna þess hversu illa frumvarpið er unnið og hversu mörg vandamál munu skapast af samþykkt þess.
Ég ætla hins vegar að halda mig við tvö atriði að þessu sinni í andsvari mínu og byrja á að spyrja hv. þingmann út í ákvæði í 8. gr. frumvarpsins, sem varðar ákveðna tímafresti, ákveðin tímamörk sem hafa verið á málsmeðferð tiltekinna mála, sérstaklega mála fólks sem hefur fengið vernd í öðrum ríkjum, svo sem á Grikklandi. Samkvæmt núgildandi lögum hafa stjórnvöld 12 mánuði til að klára þessi mál og flytja fólk úr landi, þar á meðal börn. Ef það tekst ekki og tafir eru ekki á ábyrgð umsækjanda sjálfs þá skal mál tekið til efnismeðferðar, með öðrum orðum: Umsækjandi fær áheyrn sem hann hefur ekki fengið áður. Þær athugasemdir bárust undir meðferð málsins að með breytingunum sem verið er að leggja til í frumvarpinu sé verið að koma því þannig fyrir að börn missi réttindi vegna athafna annarra. Í núgildandi lögum á fólk rétt á efnismeðferð ef málsmeðferðin hefur tekið meira en 12 mánuði og tafir eru ekki á ábyrgð umsækjanda. Samkvæmt frumvarpinu þá hljómar það svo, með leyfi forseta:
„[…] skal taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka. Við mat á því hvort viðkomandi hafi borið ábyrgð á töfum á afgreiðslu máls skal m.a. líta til þess hvort viðkomandi hafi dvalist á ókunnum stað um tíma, (Forseti hringir.) framvísað fölsuðum skjölum eða gefið misvísandi upplýsingar um auðkenni sitt, ekki mætt í boðað viðtal eða læknisskoðun eða að öðru leyti ekki sýnt samstarfsvilja við meðferð, úrlausn eða framkvæmd máls.“ (Forseti hringir.)
Ef foreldri barns (Forseti hringir.) mætir ekki í læknisskoðun á fyrstu vikum málsmeðferðar missir barn rétt til áheyrnar (Forseti hringir.) og stjórnvöld hafa alla ævi barnsins til að reyna að koma því úr landi. (Forseti hringir.) Ég ætla að spyrja hv. þingmann hvað henni finnst um þetta og hvers vegna ekki er minnst á þetta einu orði í nefndaráliti meiri hlutans.
(Forseti (LínS): Forseti vill ítreka við þingmenn að virða ræðutímann.)