útlendingar.
Virðulegur forseti. Það er bara kolrangt hjá hv. þingmanni að hér sé ekkert verið að gera í þessum málum og undanþáguákvæðin gagnvart þjónustusviptingunni sýna það svo bersýnilega. Þar er m.a. talað um börn og fylgdarmenn þeirra, ófrískar konur og annað sem tilgreint er þarna. Ég veit að hv. þingmaður þekkir það mjög vel þótt hún kunni að vilja láta það hljóma með öðrum hætti akkúrat hér. En mig langar að spyrja hv. þingmann út í það sem hún sagði einmitt í ræðu sinni. Við erum þátttakendur í alþjóðasamfélaginu með þeim réttindum og skyldum sem falla undir það. Þess vegna hefur þessi ríkisstjórn og Ísland tekið á móti fjölda flóttamanna og við viljum gera það vel og við viljum gera það áfram. En telur hv. þingmaður að til að mynda vinir okkar í Noregi séu ómannúðlegir í sinni stefnu? Við heimsóttum Noreg og ræddum þetta við norska þingmenn og aðra sem fara með kerfið þar. Er Noregur, okkar nágrannaríki, að gera eitthvað vont? Eru þau ómannúðleg? Þegar við færum okkur í átt að því kerfi, er það þá ómannúðlegt, hv. þingmaður?