153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:27]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Helga Vala Helgadóttir) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka kærlega fyrir seinna andsvar. Það er hægt að bæta það með því að þeir þingmenn stjórnarmeirihlutans sem vilja hafa samráð — t.d. við Þroskahjálp, við umboðsmann barna, við þá sem starfa með veikum, með fötluðum, með börnum — felli einfaldlega málið eða leggi til að málið verði afturkallað og við förum í alvöruvinnu við þennan málaflokk. Það er ekki hægt að gera þetta svona. Við fengum fregnir af því að ung stúlka, unglingsstúlka með Downs-heilkenni, hefði mætt með móður sinni í skólaviðtal og viðmælandinn hefði spurt: Hver er þetta? Það vissi enginn af þessari stelpu í kerfinu. Ung stúlka með Downs á flótta sem fékk enga þjónustu í kerfinu af því að það vissi bara einfaldlega enginn af henni. Það vissi enginn af tilvist hennar. (Forseti hringir.) Hver á að geta séð að þarna sé einstaklingur sem er með sérþarfir samkvæmt þessu frumvarpi ef það er hvergi skráð í kerfinu? (Forseti hringir.) Það eru hvergi tölulegar upplýsingar um fjölda fólks með fötlun í þessu kerfi. Hvergi.