153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[17:29]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það sé nú rétt að hv. þingmaður geri greinarmun á tilefnislausum umsóknum, þegar hún ræddi þær, og svo umsóknum sem er hafnað. Þarna er reginmunur og ég held að hv. þingmaður sé að rugla þarna saman. En ég ætla ekki að fara í það. Ég fer í það síðar.

Það sem mig langaði að spyrja hv. þingmann að er einfaldlega spurning sem hún fékk hér áðan frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur og hún svaraði ekki. Það varðar 6. gr. og niðurfellinguna á þjónustunni eftir 30 daga. Telur hv. þingmaður, og væntanlega Samfylkingin, það eðlilegt að fólk njóti út í hið óendanlega félagslegrar aðstoðar, sem er dýr, þegar fyrir liggur skýr niðurstaða um brottvísun að undangenginni réttlátri málsmeðferð á tveimur stjórnsýslustigum og viðkomandi sýnir ekki samstarfsvilja um brottför? Áætlaður beinn kostnaður við þessa þjónustu er að lágmarki um 300.000 kr. á mánuði, það er að segja einstaklingar sem hafa fengið neitun, farið í gegnum allt ferlið og fengið neitun, fá þjónustu frá ríkinu sem kostar 300.000 kr. að lágmarki á mánuði. Þessir einstaklingar eru ólöglegir í landinu. Finnst hv. þingmanni það eðlilegt? Og Samfylkingin, er hún þeirrar skoðunar að þetta eigi bara að vera svona, að skattgreiðendur eigi bara að standa straum af þessum kostnaði þegar það liggur alveg ljóst fyrir á öllum stigum að viðkomandi þarf að fara úr landi, hann á ekki rétt á vernd samkvæmt þeim skilyrðum sem er að finna í lögum?

Svo má bæta því hér við, af því að hv. þingmaður talaði um aukna skilvirkni, að þessi breyting eykur að sjálfsögðu skilvirkni af því að hún dregur úr hvatanum fyrir umsækjendur til þess að tefja brottvísanir sínar, enda verður þjónustan þá líka skert. Það eru nær öll ríki Evrópu með hvata í formi réttarskerðingar til að hvetja til sjálfviljugrar brottfarar og fólk er aðstoðað við að fara úr landi. Það er ýmis aðstoð sem fylgir því, styrkur til brottfarar o.s.frv. (Forseti hringir.) Ég óska eftir því að hv. þingmaður svari þessari spurningu núna, því sem hún vék sér undan að svara áðan.