útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Við erum ekki með sama regluverk og við erum ekki að breyta yfir í sama regluverk og nágrannaríki okkar. Nágrannaríki okkar eru innbyrðis heldur ekki með sama regluverk. Það er ekki verið að praktísera það sama í Noregi eða vinna eftir sömu reglum í Noregi og Danmörku til dæmis. Við fórum og heimsóttum þessi ríki og það var alveg ljóst að það var ólík meðferð á þessu fólki eftir því hvort þú varst staddur í Danmörku eða Noregi. Svíar fara svo enn aðra leið þannig að það er ekkert hægt að segja: Ætlum við að hafa öðruvísi eða sömu reglur? Þær eru ekki eins. Það eru örfá ríki í Evrópu sem eru að endursenda fólk til Grikklands til dæmis. Flest hafa bara hætt algerlega endursendingum til Grikklands af því að það telst ómannúðlegt. Íslensk stjórnvöld eru hins vegar að gera það. (Gripið fram í.) Það er ekki sjúkum að kenna að innviðir heilbrigðiskerfisins eru jafnveikir og raun ber vitni. Það er stjórnvöldum að kenna, þeim stjórnvöldum sem hafa ráðið hér ríkjum að undanförnu og þar getur maður ekki annað en horft til Sjálfstæðisflokksins sem fer með fjármálaráðuneytið og hefur gert undanfarin ár sem tekur ákvörðun um að vanfjármagna heilbrigðiskerfið, vanfjármagna innviðina svo mjög að það er ekki hægt að tryggja hérna lágmarksþjónustu. Það er ekki veiku fólki að kenna. Það er heldur ekki fólki í leit að vernd að kenna ef verndarkerfið er eitthvað brogað, bara því miður. Það er pólitísk ákvörðun að veikja svo innviðina í landinu að þeir ráði ekki við það verkefni sem er þó lögboðið. Á því ber Sjálfstæðisflokkurinn ábyrgð en einnig Framsóknarflokkurinn og Vinstrihreyfingin – grænt framboð.