153. löggjafarþing — 53. fundur,  23. jan. 2023.

útlendingar.

382. mál
[18:09]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og fyrir samstarfið í hv. allsherjar- og menntamálanefnd þar sem við höfum átt mjög gott samtal um þetta frumvarp og þennan málaflokk allan. Ég tek heils hugar undir það með hv. þingmanni að Ísland á að standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar, og gera það vel, og ég tel reyndar að Ísland sé að gera það vel. En ég er sammála hv. þingmanni í því að það þurfi að auka skilvirknina sem er einmitt meginstefið og markmiðið með þessu frumvarpi.

Ég sé að hv. þingmaður skrifar inn í nefndarálit sitt að það sé líka mjög mikilvægt að ná sátt í samfélaginu um málaflokkinn í heild sinni. Það get ég tekið heils hugar undir. Það hefur því miður ekki tekist, ekki enn sem komið er alla vega, að ná sátt hér á þingi. Með þeim breytingartillögum og þeim áherslum sem hv. þingmaður leggur hér fram finnst mér bersýnilegt að það eru pólar hér í umræðunni um útlendingamál. Ég spyr hv. þingmann: Getur hann ekki fallist á það að frumvarpið, eins og það kemur núna út úr allsherjar- og menntamálanefnd, sé bara býsna góð málamiðlun til að taka utan um þennan viðkvæma og mikilvæga málaflokk?