útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég get reyndar ekki túlkað umræðuna eins og hún hefur verið í nefndinni á þann veg að myndast geti meiri hluti hér utan um tillögur hv. þingmanns að breytingum. En ég vil líka minna hv. þingmann á það sem fram kemur í nefndaráliti meiri hluta, þ.e. að við æskjum þess að fá skýrslu frá hæstv. dómsmálaráðherra eftir 12 mánuði til að sjá hvort markmið frumvarpsins hafi náð fram að ganga. Ég held reyndar að það sé mjög mikilvægt því að eins og fram hefur komið í umræðunni þá er þetta mjög kvikur málaflokkur.
Mig langar að koma aðeins inn á það sem hv. þingmaður ræðir varðandi Venesúela og minna á að öll ríki í Evrópu eru að veita fólki frá Venesúela dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Það er bara spurning hvort það sem við erum að gera sé réttmætt, þ.e. þessi viðbótarvernd. Það er ekki eins og það sé alsérstakt að fólk frá Venesúela fái vernd hér á Íslandi. Ég held einnig að það sé mikilvægt að talað sé um þetta varðandi gæsluvarðhald á Hólmsheiði, fyrir þá sem eru í þvingaðri brottför. Það ber að ítreka (Forseti hringir.) að um alger undantekningartilfelli er að ræða. Ég hygg að hv. þingmaður hafi tekið eftir því, í umræðum í nefndinni, hversu sjaldgæft það er að slíku sé beitt og eingöngu (Forseti hringir.) þegar um það er að ræða að viðkomandi sé sjálfum sér eða öðrum hættulegur.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna þingmenn á að virða ræðutíma, hann er ein mínúta.)