útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég kannaði þetta í morgun varðandi Venesúela. Bandaríkin eru með nýtt prógramm varðandi Venesúela, þar ætla menn að taka á móti allt að 24.000 manns frá Venesúela á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Það myndi þýða að við ætluðum að taka á móti allt að 24 einstaklingum frá Venesúela á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Í hittiðfyrra, árið 2021, tóku Bandaríkin á móti 22.454 umsóknum um hæli. Við tókum á móti 361, Svíþjóð tók á móti 34, Noregur á móti 29. Við erum númer 29 eftir Þýskalandi — það eru 82–83 milljónir sem búa í Þýskalandi. Við, 370.000 manns, tökum á móti 361. Úrskurðir kærunefndar eru að fjalla um efnahagsástandið og ég bara vísa til þess sem stendur í nefndarálitinu.
Varðandi gæsluvarðhaldsfangelsið þá er það ekki mikill fjöldi, en það eru 20–30 manns sem (Forseti hringir.) hafa verið í gæsluvarðhaldi þar samkvæmt dómsúrskurði sem eru í þvingaðri brottför. (Forseti hringir.) Það er of mikið. Þó að það væri ekki nema einn eða tveir væri það of mikið og það er algjört hneyksli að mínu viti að þetta sé í lögunum.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill aftur ítreka að ræðutími er ein mínúta.)